Aðalfundur Kynjakatta 2026

19. mars 2026

Aðalfundur Kynjakatta verður haldinn laugardaginn 25. apríl 2026 kl. 13:00 í kjallara Höfðakaffi, Vagnhöfða 11, 110 Reykjavík.
 
Dagskrá fundarins:
●Farið yfir starfsemi félagsins
●Fjárhagur félagsins kynntur
●Umræður um kostnað við sýningar
●Kosningar til stjórnar
●Kosið um fyrirhugaðar verðbreytingar
●Kynntar verða lagagerðar breytingar sem stjórn sendi til FIFé
 
Kosið verður í eftirfarandi stöður í stjórn:
●Varaformaður
●Ritari
●Gjaldkeri
●Sýningarstjóri
 
Framboð til stjórnar:
Félagsmenn sem hafa áhuga á að bjóða sig framm hvort sem er um endurkjör eða fyrsta framboð að ræða eru beðnir um að senda skriflegt erindi fyrir 3.apríl á kynjakettir@kynjakettir.is
Vinsamlegast tilgreinið: Hvaða stöðu er sótt um, stutta kynningu á ykkur og áhuga ykkar á viðkomandi starfi ásamt því að senda inn mynd. (Framboðin verða kynnt eftir 3.apríl)
 
Þátttaka í nefndum:
Félagsmönnum er einnig velkomið að hafa samband við stjórn ef þeir hafa áhuga á að taka þátt í nefndarstarfi innan félagsins.
 
Við hvetjum alla félagsmenn til að mæta og taka þátt