Aðalfundur Kynjakatta 2026

Aðalfundur Kynjakatta – Kattaræktarfélags Íslands fór fram laugardaginn 25. apríl 2026 kl. 13:00 á Höfðakaffi, Vagnhöfða 11, 110 Reykjavík.

Alls sátu 23 félagsmenn fundinn.

Við upphaf fundar voru tilnefndir fundarstjóri og fundarritari.

Helga Karlsdóttir bauð sig fram sem fundarstjóra og Thelma Rut Stefánsdóttir sem fundarritara, bæði framboðin voru samþykkt einróma.

 

1. Stjórn félagsins gerir grein fyrir störfum sínum

Helga Karlsdóttir gerði grein fyrir störfum stjórnar frá því hún tók við sem formaður árið 2025.

 

2. Nefndir og ræktunarráð gera grein fyrir störfum sínum

Rit- og auglýsinganefnd

Rósa Hlíðberg Jónsdóttir gerði grein fyrir störfum rit- og auglýsinganefndar. Hún sagði frá útgáfu tveggja blaða ásamt sölu ýmissa auglýsinga.

 

Sýningarnefnd

Helga Karlsdóttir gerði grein fyrir störfum sýningarnefndar. Alls voru 316 kettir skráðir á sýningar félagsins árið 2025.

 

Ræktunarráð

Helga Karlsdóttir gerði grein fyrir störfum ræktunarráðs. Ráðið fór yfir 15 umsóknir um skráningu innfluttra katta í félagið, þar af voru 10 ættbækur frá aðildarklúbbum FIFé og 5 utan FIFé. Auk þess bárust þrjár umsóknir um ræktunarnöfn. Alls voru skráðar 326 ættbækur fyrir árið 2025 og voru þrjár stærstu tegundirnar: Maine Coon (28%), Ragdoll (13%) og Norskur skógarköttur (11%).

 

3. Stjórn félagsins leggur fram endurskoðaða reikninga félagsins

Ársreikningar félagsins voru unnir af bókhaldsstofunni Plús.

Íris Ajayi, gjaldkeri félagsins, las upp og fór yfir ársreikninginn með félagsmönnum. Þar kom fram töluvert tap félagsins fyrir árið 2025 sem hljóðar upp á 1.330.515kr.

 

Útskýrt var að mikill kostnaður hefði fallið til vegna endurgerðar og yfirferðar ársreikninga, ásamt flutningi milli bókhaldsstofa. En að mikla tapið sé aðallega að rekja til mikils kostnaðar við sýningar og litla innkomu. 

 

Ársreikningurinn var samþykktur af öllum fundargestum.

 

4. Ákvörðun um hækkun félagsgjalda og annarra gjalda

Helga Karlsdóttir útskýrði og sýndi glærur um aukinn kostnað félagsins vegna sýninga, húsaleigu og almenns rekstrarkostnaðar.

 

Stjórn lagði fram tillögur að hækkun félagsgjalda, sýningargjalda, ættbóka og umsókna um ræktunarnöfn.

 

Tillögurnar voru samþykktar af meirihluta fundargesta.

 

Samþykktar tillögur um hækkun sýningargjalda

 Lagt var til að afnema gotafslátt og að afsláttur tæki ekki gildi fyrr en með þriðja ketti í stað annars kattar áður.

• Lagt var til að fyrsti og annar köttur hækka úr 6.500 kr. í 7.500 kr. Hins vegar vildu félagsmenn á fundinum frekari hækkun í 8.500 kr., sem samþykkt var.

• Þriðja kött og fleiri úr 4.500kr. í 6.500 kr.

• Félagsköttur hækkar úr 2.500 kr. í 3.500 kr.

• Litadómur hækkar úr 1.500 kr. í 3.000 kr. fyrir þrjá fyrstu kettina í litadóm svo eru 4 og fleiri úr 1.500 kr. í 2.000 kr. Það með að veita afslátt af litadómnum eftir þrjá ketti kom sem tillaga á fundinum sem var samþykkt.

• Húsköttur hækkar úr 3.000 kr. í 4.000 kr.

 

Samþykktar tillögur um hækkun á almennri verðskrá

• Ættbækur hækka úr 5.000 kr. í 9.000 kr.

• Innflutt ættbók hækka úr 5.000 kr. í 12.000 kr.

• Leiðrétting ættbókar hækkar úr 1.500 kr. í 3.600 kr.

• Húskattar skírteini hækkar úr 1.000 kr. í 2.500 kr.

• Umsókn um ræktunarnafn hækkar úr 15.000 kr. í 35.000 kr.

• Nafnabreyting á ræktunarnafni kostar 15.000 kr.

 

Samþykktar tillögur um hækkun félagsgjalda

• Einstaklingsaðild hækkar úr 5.500 kr. í 6.600 kr.

• Fjölskylduaðild hækkar úr 7.500 kr. í 8.600 kr.

 

 

Samþykktar breytingar á félagsgjöldum taka gildi árið 2027 en aðrar verðskrá breytingar takta gildi 1. júní 2026.

 

5. Lagabreytingar

Engar lagabreytingar voru lagðar fram.

 

6. Kosningar til stjórnar

• Thelma Rut Stefánsdóttir bauð sig fram áfram sem varaformaður. Engin önnur framboð bárust og hlaut hún 22 atkvæði.

• Íris Ajayi bauð sig fram áfram sem gjaldkeri. Engin önnur framboð bárust og hlaut hún 23 atkvæði.

• Arnar Snæbjörnsson bauð sig fram áfram sem sýningarstjóri. Engin önnur framboð bárust og hlaut hann 23 atkvæði.

• Margrét Einarsdóttir bauð sig fram sem ritari og hlaut 23 atkvæði. Hún tekur við af fráfarandi ritara, Alberti Sölva Óskarssyni, sem gaf ekki kost á sér áfram.

 

7. Kosning tveggja félagslegra skoðunarmanna og eins til vara

Birna Hrafnsdóttir og Kristín Bjarnadóttir voru kjörnar félagslegir skoðunarmenn.

Enginn bauð sig fram til vara.

 

8. Kosning þriggja félagsmanna í aganefnd og tveggja til vara

Eftirfarandi aðilar voru kjörnir í aganefnd:

• Inga Lísa Hansen

• Laufey Stefánsdóttir

• Helga Ósk Hreinsdóttir

 

Til vara voru kjörnar:

• María Björk Sverrisdóttir

• Ásdís Gunnarsdóttir

 

9. Önnur mál

Helga Karlsdóttir sagði frá undanþágubeiðni sem Kynjakettir sendu til FIFe um að færast úr annex 3 yfir í annex 4A/4B. Slík breyting myndi henta félaginu betur þar sem færri stig þyrfti til að fá hærri titla, meðal annars vegna þess að félagið heldur aðeins tvær sýningarhelgar á ári, samtals fjórar sýningar.

 

Einnig var send inn tillaga frá Kynjaköttum á aðalfund FIFe um breytingar á orðalagi við lýsingar á smoke litnum, sem unnin var af Aliosha Romero.

 

Tillaga kom fram um að halda fyrirlestur eða fræðslufund. Arnar benti á mikilvægi þess að senda stjórn tilkynningu um efni sem óskað er eftir að tekið verði fyrir, svo hægt sé að skipuleggja og bóka slíkan viðburð.

 

Fundi var slitið kl. 15:24.